Skip to product information
1 of 2

10% Premium CBD Húðolía frá Le Pharm

Verð 8.690 kr
Verð Útsöluverð 8.690 kr
Afsláttur Uppselt
m/vsk Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.

Le Pharm Premium CBD húðolía

Stærð: 10ml

Magn CBD: 10% (1000mg)

Heilvirkt CBD (full spectrum)

Ráðlögð notkun: Einn til 4 dropar á húð 2 - 3svar á dag.

Grunnefnið í Le Pharm CBD, heilvirkri (full spectrum) húðolíu, er sótt með koldíoxíð pressun til að draga alla kannabínóða iðnaðarhampsins úr plöntunni. Aðferðin er 100% náttúruleg og með henni verður útdrátturinn heilvirkur (full spectrum). Með öðrum kannabínóðum og fleiri lífvirkum efnasamböndum ásamt kókosolíunni sem notast er við til íblöndunar myndast nokkurs konar „hópefli“ (e.entourage effect) sem hámarkar virknina sem ná má úr plöntunni.

CBD olían er fáanleg í 10 ml. flösku með dreypara (pípettu) og fjórum mismunandi styrkleikum. Olían er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.2%.

Hún inniheldur engin gervi- litar- eða lyktarefni. Í þessari olíu, eins og í ýmsum öðrum CBD húðvörum, eru engin efni sem ekki er óhætt að borða (e. eatable).

Verkferlar og geymsla.

CBD innihaldsefnið í Le Pharm olíunni er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að öll önnur innihaldsefni séu lífræn og unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practices). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíð pressun án nokkurra aukaefna. Aðferðin er sú náttúrulegasta sem völ er á í CBD vinnslu. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals.

Hrista skal olíuna vel fyrir notkun og nota hana innan sex mánaða eftir opnun. Best er að geyma olíuna upprétta utan mikillar birtu og hita. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Framleiðandinn.

Framleiðandi Le Pharm olíunnar er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim.

www.pharma-hemp.com

Innihaldsefni:

OLEA EUROPAEA FRUIT OIL, CANNABIS SATIVA BIOMASS EXTRACT, MIXED TERPENES (LIMONENE, LINALOOL)

Ábending:

Börnum, barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að nota olíuna. Ef upp koma óþægindi í húð eða olían berst í augu skal skola með vatni.

Afhendingartími

1-3 virkir dagar